Í dag er sléttur mánuður í að kvennalandsliðið spilar sinn fyrsta leik á Evrópumótinu í Hollandi.
Fram að mótinu munum við kynna alla leikmenn liðsins daglega í liðnum 4-4-2 þar sem leikmenn svara fjórum almennum spurningum, fjórum fótboltaspurningum og tveimur spurningum af handahófi.
Margrét Lára Viðarsdóttir fyrirliði liðsins ríður á vaðið. Hún verður með liðinu í Hollandi þrátt fyrir að hafa slitið krossband í hné á dögunum sem þýðir að hún spilar ekki með liðinu.
Athugasemdir