Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 19. júlí 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: FH ingar hentu sér í þrígang niður eftir vítið
Kristján Flóki fiskaði vítið og féll síðan til jarðar nokkrum sekúndum síðar.
Kristján Flóki fiskaði vítið og féll síðan til jarðar nokkrum sekúndum síðar.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH komst áfram í 2. umferð í Meistaradeildinni með 2-0 sigri á Víkingi frá Götu í gærkvöldi.

FH þurfti að skora mark í leiknum til að komast áfram og ísinn var brotinn á 78. mínútu þegar Steven Lennon skoraði úr vítaspyrnu.

Andreas Olsen hafði þá brotið á Kristjáni Flóka Finnbogasyni en hann fékk rauða spjaldið í kjölfarið.

Færeyingarnir voru ósáttir við dóminn og virkuðu mjög pirraðir eftir að Ville Nevalainen, dómari frá Finnlandi, benti á punktinn.

Færeyingarnir ýttu nokkrum sinnum við FH-ingum og frá vítaspyrnudómnum og fram að miðjunni duttu FH-ingar þrívegis til jarðar. Kristján Flóki féll tvívegis til jarðar sem og Pétur Viðarsson.

Sjón er sögu ríkari en þetta má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner