Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 30. september 2017 19:28
Kristófer Jónsson
Conte: Allt getur gerst í svona stórleikjum
Mynd: Getty Images
Antonio Conte, stjóri Chelsea, var að vonum svekktur eftir 1-0 tap gegn Manchester City í stórleik umferðarinnar.

„Að sjálfsögðu er ég svekktur með úrslitin en ég held að í svona stórleikjum geti allt gerst. Ég er ánægður með hugarfar leikmanna minna í dag því við gáfum allt í leikinn."

Alvaro Morata þurfti að fara meiddur af velli í fyrri hálfleik. Conte telur hins vegar að meiðslin séu ekki alvarleg.

„Þegar þú spilar þrjá stóra leiki á sjö dögum getur svona gerst. Við tókum hann (Morata) útaf áður en að eitthvað alvarlegt gerðist og því hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu."

Chelsea situr eftir leikinn í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar, sex stigum á eftir Manchester liðunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner