sun 01. október 2017 19:30
Fótbolti.net
Íslenskur slúðurpakki #2
Sölvi Geir er orðaður við FH.
Sölvi Geir er orðaður við FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán Flóventsson hefur tilkynnt Grindavík að hann ætli að hætta.  Hann gæti farið á Höfn í Hornafirði þar sem eiginkona hans og börn eru þar.
Óli Stefán Flóventsson hefur tilkynnt Grindavík að hann ætli að hætta. Hann gæti farið á Höfn í Hornafirði þar sem eiginkona hans og börn eru þar.
Mynd: Raggi Óla
Björgvin Stefánsson er orðaður við Stjörnuna, Víking R. og Grindavík en hann er á förum frá Haukum.
Björgvin Stefánsson er orðaður við Stjörnuna, Víking R. og Grindavík en hann er á förum frá Haukum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV vill fá Þórarinn Inga heim til Eyja.
ÍBV vill fá Þórarinn Inga heim til Eyja.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Óvíst er hvað Sandra Mayor gerir.
Óvíst er hvað Sandra Mayor gerir.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Arna Sif er líklega á leið heim í Þór/KA.
Arna Sif er líklega á leið heim í Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Þór Gestsson er að taka við ÍR.
Brynjar Þór Gestsson er að taka við ÍR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Siggi Jóns er orðaður við nokkur þjálfarastörf.
Siggi Jóns er orðaður við nokkur þjálfarastörf.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Jó gæti verið á leið aftur í eldlínuna.
Bjarni Jó gæti verið á leið aftur í eldlínuna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þá er komið að öðrum slúðurpakkanum úr íslenska boltanum þetta haustið.

Slúðurpakkinn er einungis til gamans og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected]

Smelltu hér til að sjá slúðurpakka #1 (25.09)



Valur: Líklegt þykir að Valur nái að landa Ólafi Karli Finsen frá Stjörnunni. Kristinn Jónsson, leikmaður Breiðabliks, hefur einnig verið orðaður við Val. Varnarmaðurinn Rasmus Christiansen gæti verið á förum en hann átti ekki fast sæti í liði Vals í sumar. Rasmus er samningslaus og gæti ákveðið að róa á önnur mið.

Stjarnan: Ef Hólmbert Aron Friðjónsson fer út í atvinnumennsku þá ætlar Stjarnan að reyna að fá Óskar Örn Hauksson frá KR eða Atla Guðnason frá FH en þeir eru báðir samningslausir. Stjarnan hefur einnig augastað á Björgvini Stefánssyni, framherja Hauka. Varnarmaðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson er mögulega á förum.

FH: Sölvi Geir Ottesen er líklega á leið í FH en hann er á heimleið frá Kína. Óskar Örn Hauksson, kantmaður KR er á óskalistanum sem og Pablo Punyed, miðjumaður ÍBV. FH ætlar einnig að reyna að fá Andra Rúnar Bjarnason frá Grindavík en líklegast er að hann fari út í atvinnumennsku. Jón Ragnar Jónsson gæti lagt skóna á hilluna og Halldór Orri Björnsson gæti verið á förum. Emil Pálsson gæti einnig farið en hann er að verða samningslaus.

KR: Í Vesturbænum er leit hafinn að eftirmanni Willums Þórs Þórssonar sem er á leið í framboð. Rúnar Kristinsson er efstur á blaði KR-inga. Nafn Indriða Sigurðssonar hefur líka verið nefnt til sögunnar.

KA: Davíð Rúnar Bjarnason er líklega á förum frá KA. Davíð var fyrirliði KA þegar liðið vann Inkasso-deildina í fyrra en hann hefur lítið spilað í ár vegna meiðsla. KA er í leit að nýjum miðverði fyrir næsta sumar. KA vill líka fá framherjann unga Sæþór Olgeirsson frá Völsungi en hann var markakóngur í 2. deildinni í sumar með 23 mörk.

Grindavík: Óli Stefán Flóventsson tilkynnti stjórn Grindavíkur í síðustu viku að hann ætli sér ekki að halda áfram með liðið. Stjórn Grindvíkinga ætlar að reyna að telja Óla hughvarf. Ef það tekst ekki hafa nokkrir þjálfarar verið orðaðir við stöðuna. Jóhannes Karl Guðjónson og Ejub Purisevic eru á meðal þjálfara sem hafa verið orðaðir við þjálfarstöðuna. Bjarni Jóhannsson gæti tekið við og fengið Henrik Bödker með sér sem aðstoðarmann en Brynjar Björn Gunnarsson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar hefur líka verið nefndur til sögunnar sem nýr þjálfari. Varnarmaðurinn Björn Berg Bryde gæti ákveðið að róa á önnur mið. Grindvíkingar gætu hins vegar reynt að fá framherjann Björgvin Stefánsson í sínar raðir frá Haukum.

Breiðablik: Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks, er með tilboð frá Svíþjóð og líklegt er að hann starfi utan Íslands á næsta tímabili. Rúnar Kristinsson er áfram á óskalista Breiðabliks í þjálfarastöðuna en Óli Stefán Flóventsson hefur líka verið nefndur til sögunnar. Alfons Sampsted gæti komið aftur til Breiaðbliks frá Norrköping í Svíþjóð og Guðmundur Kristjánsson gæti komið heim frá Start í Noregi. Vangaveltur hafa verið um framtíð Kristins Jónssonar sem er að renna út af samningi en Blikar binda þó vonir um að hann framlengi samning sinn við félagið.

Víkingur R.: Víkingar hafa gefið upp vonir um að Geoffrey Castillion verði áfram hjá félaginu. Geoffrey er eftirsóttur en hann er meðal annars með heillandi tilboð frá Asíu í höndunum. Í Fossvoginum er áhugi á Björgvini Stefánssyni framherja Hauka. Skoski miðvörðurinn Alan Lowing mun ekki leika hér á landi næsta sumar.

Fjölnir: Atli Sigurjónsson, leikmaður Þórs, gæti komið til Fjölnismanna en hann hefur lengi verið á óskalistanum í Grafarvogi.

ÍBV: Talsverðar breytingar verða hjá Eyjamönnum þar sem lykilmenn ætla að flytja upp á fasta landið. Líklegt er að Kristján Guðmundsson verði áfram þjálfari. Færeyski bakvörðurinn Jónas Þór Næs gæti verið á förum. Bikarmeistararnir ætla að reyna að styrkja hópinn vel og efstir á óskalistanum eru Þórarinn Ingi Valdimarsson hjá FH og Ólafur Karl Finsen hjá Stjörnunni.

Fylkir: Árbæingar eru að reyna að kaupa Ragnar Braga Sveinsson sem var á láni frá Víkingi R. síðari hluta sumars. Atli Sigurjónsson er einnig á óskalistanum í Árbænum.

Keflavík: Keflvíkingar eru að reyna mikið til að krækja í Ólaf Karl Finsen frá Stjörnunni. Sigurður Marinó Kristjánsson gæti komið frá Þór en hann var að flytja suður.

Pepsi-deild kvenna:
Þór/KA: Markadrottningin Sandra Stephany Mayor er eftirsótt en félög í Þýskalandi og Kína hafa meðal annars sýnt henni áhuga. Bianca Sierra, varnarmaður Þór/KA, færi þá líklega einnig en hún er unnusta Söndru. Varnarmaðurinn öflugi Arna Sif Ásgrímsdóttir er líklega að koma aftur í Þór/KA frá Val. Markvörðurinn Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir gæti hins vegar verið á förum en hún vill finna sér félag á höfuðborgarsvæðinu. Markvörðurinn Berglind Hrund Jónasdóttir gæti komið frá Stjörnunni sem og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir.

Breiðablik: Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir gæti farið út í atvinnmennsku en hún er eftirsótt. Rakel Hönnudóttir gæti einnig verið á leið út. Fjolla Shala gæti verið á förum frá Breiðabliki. Fjolla sleit krossband í fyrra og spilaði ekkert í sumar. Miðjumaðurinn ungi Alexandra Jóhannsdóttir er líklega að koma til Breiðabliks frá Haukum. Breiðablik er eins og fleiri félög að reyna að fá systurnar Thelmu Lóu og Ídu Marín Hermannsdætur frá Fylki sem og framherjann Sveindísi Jane Jónsdóttur frá Keflavík.

Valur: Málfríður Erna Sigurðardóttir gæti lagt skóna á hilluna. Valur vill fá Hallberu Gísladóttur frá Djurgarden og Sigríður Lára Garðarsdóttir miðjumaður ÍBV er einnig á óskalistanum sem og Sveindís Jane hjá Keflavík.

ÍBV: Sigríður Lára Garðarsdóttir gæti reynt fyrir sér í atvinnumennsku. Katrín Ómarsdóttir, miðjumaður KR, er á óskalistanum sem og Jasmín Erla Ingadóttir leikmaður Fylkis.

Stjarnan: Donna K. Henry og Katrín Ásbjörnsdóttir gætu verið á förum frá Stjörnunni auk þess sem óljóst er hvað markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir gerir. Hólmfríður Magnúsdóttir er mögulega á leið í Garðabæinn frá KR.

KR: Katrin Ómarsdóttir gæti verið á förum frá KR en hún ætlar að skoða sín mál í haust.

Selfoss: Framherjinn Guðmunda Brynja Óladóttir er orðuð við endurkomu í Selfoss frá Stjörnunni.

FH: Donna Kay Henry og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir gætu komið til FH frá Stjörnunni.

Fylkir: Hulda Sigurðardóttir og Jasmín Erla Ingadóttir eru á óskalistanum hjá öðrum félögum eftir fall Fylkis úr Pepsi-deildinni.

Inkasso-deildin

Víkingur Ó.: Ekki hefur verið staðfest hvort Ejub Purisevic muni hætta en reynsluboltinn Bjarni Jóhannsson er orðaður við starfið ef hann hverfur á braut. Ejub ku vera með tilboð frá Noregi og líklegt er að hann hætti með Víking. Sigurður Jónsson, fyrrum landsliðsmaður, hefur einnig verið orðaður við þjálfarastöðuna í Ólafsvík.

ÍA: Jón Þór Hauksson þykir líklegastur til að halda áfram með ÍA en þjálfaramál Skagamanna skýrast líklega í vikunni. Jóhannes Karl Guðjónsson og Sigurður Jónsson hafa einnig verið nefndir til sögunnar.

Þróttur R.: Ennþá er óljóst hvort Gregg Ryder haldi áfram sem þjálfari Þróttar.

Leiknir R.: Miðvörðurinn Halldór Kristinn Halldórsson íhugar að leggja skóna á hilluna. Brynjar Hlöðversson, fyrirliði Leiknis, er líklega á förum.

Þór: Í þorpinu er unnið að því að styrkja hópinn fyrir næsta sumar. Þórsarar vilja fá Hallgrím Jónasson, varnarmann Lyngby, sem spilandi aðstoðarþjálfara eftir að Kristján Örn Sigurðsson flutti aftur til Noregs. Halldór Hermann Jónsson, miðjumaður Magna, og Bjarki Þór Viðarsson, bakvörður KA, eru einnig á óskalistanum.

Haukar: Miðjumaðurinn Aron Jóhannsson gæti verið á leið í Pepsi-deildina.

Selfoss: Erlendur markvörður er á leið til Selfyssinga á reynslu en hann gæti fyllt skarðs Guðjóns Orra Sigurjónssonar sem er líklega á förum. Stefán Ragnar Guðlaugsson er klár eftir krossbandsslit og hann gæti komið inn í vörnina fyrir Hafþór Þrastarson eða Andy Pew sem eru báðir samningslausir.

ÍR: Brynjar Þór Gestsson, þjálfari Þróttar í Vogum, er líklega að taka við sem þjálfari ÍR. Viktor Örn Guðmundsson er líklega á förum frá ÍR.

Njarðvík: Nýliðarnir í Inkasso-deildinni eru að skoða Sergine Fall kantmann ÍR, varnarmanninn Admir Kubat hjá Þrótti Vogum og kantmanninn Milan Tasic hjá Víði Garði.

Magni: Davíð Rúnar Bjarnason gæti komið til Magna frá KA.

2. deild karla:

Víðir Garði: Í Garðinum ætla menn að reyna að fá Jóhann Birni Guðmundsson til að taka eitt tímabil með uppeldisfélaginu.

Tindastóll: Allt bendir til þess að varnarmaðurinn reyndi Bjarki Már Árnason taki við sem þjálfari Tindastóls en hann spilaði með liðinu síðari hluta sumars.

Vestri: Daniel Badu verður ekki áfram þjálfari Vestra. Bjarni Jóhannsson og Brynjar Þór Gestsson eru á óskalista félagsins. Vestri ætlar aftur að reyna að fá Erni Bjarnason og Sólon Breka Leifsson sem voru á láni hjá félaginu frá Breiðabliki í fyrra. Ágúst Leó Björnsson, framherji úr Stjörnunni, er einnig á óskalistanum en hann var á láni hjá Aftureldingu í sumar.

Þróttur Vogum: Þróttarar vilja fá uxann Elvar Inga Vignisson, framherja Selfoss, en hann á ættir að rekja í Vogana. Sigurður Marinó Kristjánsson, leikmaður Þórs, er einnig á óskalistanum. Varnarmaðurinn Admir Kubat verður líklega áfram en Hilmar Þór Hilmarsson er á förum.

2. deild kvenna:

Tindastóll: Jón Stefán Jónsson er að taka við sem þjálfari Tindastóls.

Völsungur: John Andrews, fyrrum þjálfari kvennaliðs Aftureldingar, er líklega að taka við kvennaliði Völsungs.

3. Deild karla:

Sindri: Þjálfarastaðan er laus á Höfn í Hornafirði. Óli Stefán Flóventsson hefur óvænt verið orðaður við endurkomu í Sindra en fjölskylda hans býr á Höfn í Hornafirði. Zoran Miljkovic hefur verið orðaður við starfið sem og Christopher Harrington sem var rekinn frá Tindastóli í sumar. Sindri er einnig að fá Kristinn Justiniano Snjólfsson aftur í sínar raðir frá Leikni Fáskrúðsfirði. Króatíski markvörðurinn Darko Franic er á förum.

4. Deild karla:

Reynir Sandgerði: Jónas Guðni Sævarsson er að hætta að spila með Keflavík og hann hefur verið orðaður við þjálfarstöðuna í Sandgerði.

Skallagrímur: Í Borgarnesi er áhugi á að fá Sigurð Jónsson í þjálfarastólinn frá Akranesi.
Athugasemdir
banner
banner
banner