Jese birtir mynd af kornungum syni sem berst fyrir lífi sínu
Jese Rodriguez.
Mynd:
Getty Images
„Hann er litli stríðsmaðurinn minn," segir Jese Rodriguez, sóknarmaður Stoke, um yngsta son sinn. Strákurinn heitir Nyan og fæddist fjórum mánuðum fyrir tímann.
Jese hefur eytt miklum tíma á sjúkrahúsi við hlið Nyan sem hefur þurft að fara í erfiðar og flóknar aðgerðir.
Í september hrósaði Mark Hughes, stjóri Stoke, leikmanninum fyrir mikinn styrk með því að spila þrátt fyrir erfiðleikana utan vallar.
Jese er 24 ára og er á láni frá Paris Saint-Germain en hann hefur verið á stöðugu ferðalagi milli Englands og Spánar þar sem Nyan dvelur á sjúkrahúsi.
Jese á þrjá syni en Nyan er fyrsta barn hans með fyrirsætunni Aurah Ruiz. Jese hefur hrósað henni mikið fyrir það hvernig hún hefur glímt við þetta mótlæti sem erfið veikindi stráksins hafa verið.