Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 01. desember 2017 17:21
Elvar Geir Magnússon
Freysi sendi Heimi SMS - „Dekka númer tíu"
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson hefur verið að njósna um andstæðinga íslenska karlalandsliðsins og heldur því áfram fyrir HM. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sagði frá því í Akraborginni að ákveðið hafi verið að Freyr myndi njósna um fyrstu mótherja Íslands í Rússlandi.

Þegar ljóst var að Ísland myndi hefja leik gegn Argentínu fékk Heimir fljótlega SMS-skilaboð frá Frey.

„Hann sendi mér skilaboðin 'Dekka númer tíu' - Þar með er hans starfi lokið fyrir þennan leik," sagði Heimir léttur í bragði í þættinum.

Freyr er að sjálfsögðu að vitna í Lionel Messi sem er að margra mati besti leikmaður heims.

„Að öllu gamni slepptu þá er argentínska liðið stútfullt af hæfileikaríkum leikmönnum en þetta var ansi skemmtilegt SMS frá Freysa," bætti Heimir svo við.

Smelltu hér til að sjá riðlana á HM en Ísland er í riðli með Argentínu, Króatíu og Nígeríu.
Athugasemdir
banner
banner
banner