Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 11. desember 2017 17:00
Fótbolti.net
Fótbolta.net mótið 2018 - Riðlaskipting og leikjaniðurröðun
FH vann Fótbolta.net mótið árið 2017.
FH vann Fótbolta.net mótið árið 2017.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Breiðablik og Stjarnan mætast í 1. umferðinni.
Breiðablik og Stjarnan mætast í 1. umferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Keflavík og Grindavík eru saman í riðli 2.
Keflavík og Grindavík eru saman í riðli 2.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fótbolti.net mun áttunda árið í röð standa fyrir æfingamóti í janúar og febrúar þar sem sterkustu lið landsins taka þátt. Sex félög úr Pepsi-deildinni taka þátt í mótinu að þessu sinni sem og ÍA og HK úr Inkasso-deildinni.

Líkt og vanalega er liðunum skipt niður í tvo riðla og í kjölfarið er leikið um sæti þar sem efstu liðin í hvorum riðli mætast í úrslitum og svo framvegis. Félag deildardómara mun síðan sjá um dómgæslu á mótinu líkt og áður.

FH varð meistari á þessu ári en liðið lagði Stjörnuna í vítaspyrnukeppni eftir hörkuskemmtilegan úrslitaleik.

Hér að neðan má sjá riðlaskiptingu í A-deild Fótbolta.net mótsins sem og leikjaniðurröðun. Fyrsti leikur fer fram föstudaginn 12. janúar þegar HK og Keflavík eigast við.

Riðlaskipting í neðri deildum Fótbolta.net mótsins mun síðan birtast á næstu vikum.

Riðill 1
Stjarnan
Breiðablik
ÍBV
ÍA

Laugardagur 13. janúar
11:00 ÍA - ÍBV (Akraneshöllin)
12:30 Breiðablik - Stjarnan (Kórinn)

Þriðjudagur 16. janúar
20:00 Stjarnan – ÍA (Kórinn)

Laugardagur 20. janúar
14:00 Breiðablik – ÍBV (Varmárvöllur)

Laugardagur 27. janúar
11:00 ÍA – Breiðablik (Akraneshöllin)
12:30 Stjarnan – ÍBV (Kórinn)

Riðill 2
FH
Grindavík
Keflavík
HK

Föstudagur 12. janúar
18:15 HK - Keflavík (Kórinn)

Sunnudagur 14. janúar
15:00 FH - Grindavík (Akraneshöll)

Miðvikudagur 17. janúar
17:30 Keflavík – Grindavík (Reykjaneshöll)

Föstudagur 19. janúar
18:00 HK – FH (Kórinn)

Miðvikudagur 24. janúar
17:30 Keflavík – FH (Reykjaneshöll)

Föstudagur 26. janúar
18:00 HK – Grindavík (Kórinn)

Leikið um sæti 2-4. febrúar

Sigurvegarar Fótbolta.net mótsins frá upphafi:
2011: Keflavík
2012: Breiðablik
2013: Breiðablik
2014: Stjarnan
2015: Breiðablik
2016: ÍBV
2017: FH
Athugasemdir
banner
banner
banner