Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 30. desember 2017 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Conte: Við enduðum frábært ár í dag
Mynd: Getty Images
Antonio Conte mætti skiljanlega gríðarlega sáttur í viðtal eftir leik Chelsea og Stoke í dag þar sem Chelsea liðið skoraði fimm mörk gegn engu marki gestanna í Stoke.

„Í dag vorum við mjög góðir, við byrjuðum vel og vorum búnir að skora tvö mörk eftir 15 mínútur, héldum hreinu og það voru margir jákvæðir hlutir sem ég tók eftir í okkar leik í dag."

„En nú þurfum við að fara undirbúa okkur undir næsta leik sem verður mjög erfiður, gegn Arsenal," sagði Conte.

Conte stjórnaði Chelsea til sigurs í ensku úrvalsdeildinni í vor á sínu fyrsta tímabili í deildinni.

„Í dag enduðum við frábært ár, fyrir félagið, fyrir stuðningsmennina, fyrir leikmennina og fyrir mig. Á fyrsta tímabili mínu í deildinni vann ég titilinn, það var ekki auðvelt, svo ég verð að þakka félaginu fyrir að gefa mér þetta tækifæri."
Athugasemdir
banner
banner