Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. desember 2017 14:01
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
England: Man City náði ekki að skora gegn Crystal Palace
De Bruyne náði ekki að leggja upp mark í dag
De Bruyne náði ekki að leggja upp mark í dag
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 0 - 0 Manchester City

Fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni var rétt í þessu að ljúka en það var leikur Crystal Palace og Manchester City.

Með sigri hefði Manchester City unnið sinn 19. leik í röð, já nítján í röð.

Það mistókst hins vegar.

Crystal Palace sýndi góða frammistöðu og héldu toppliðinu á núllinu, eitthvað sem fáum liðum hefur tekist á þessu tímabili.

Í uppbótartíma hefði Crystal Palace getað stolið sigrinum þegar liðið fékk vítaspyrnu. Luka Milivojevic brást hins vegar bogalistinn af punktinum.

Lokatölur því markalaust jafntefli og sigurganga Manchester City loksins stöðvuð.
Athugasemdir
banner
banner
banner