Swansea 1 - 0 Liverpool
1-0 Alfie Mawson ('40)
1-0 Alfie Mawson ('40)
Botnlið Swansea tók á móti Liverpool í eina leik dagsins í enska boltanum, rúmri viku eftir magnaðan sigur Liverpool gegn toppliði Manchester City.
Það gekk lítið upp hjá Liverpool í fyrri hálfleik þar sem varnarleikur heimamanna var mjög góður og gekk illa að finna glufur á vörninni.
Það var miðvörðurinn Alfie Mawson sem kom Svönunum yfir undir lok fyrri hálfleiks. Vörn Liverpool tókst ekki að hreinsa eftir hornspyrnu og náði Mawson fyrstur til knattarins eftir atgang í vítateignum.
Gestirnir héldu boltanum allan síðari hálfleikinn og komust nokkrum sinnum nálægt því að jafna en inn vildi boltinn ekki.
Þetta eru afar dýrmæt stig fyrir Swansea sem er nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti. Liverpool er sem fyrr í fjórða sæti.
Athugasemdir