Phil Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur gagnrýnt frammistöðu varnarmannanna Phil Jones og Chris Smalling.
Manchester United tapaði 1-0 gegn Newcastle á útivelli í gær en þar fékk Smalling gult spjald fyrir leikaraskap skömmu áður en Newcastle skoraði.
Manchester United hefur fengið fæst mörk á sig í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en Neville er ekki hrifinn af miðvörðunum Jones og Smalling.
„Þeir eru með bestu tölfræðina varnarlega því að þeir eru með besta markmann í heimi í David De Gea og þeir hafa (Nemanja) Matic sem verndar þá mjög vel fyrir framan," sagði Neville í Match of the Day 2 á BBC í gær.

,Í síðustu tveimur útileikjum hafa Smalling og Jones verið hörmulegir. Þeir áttu ekki séns gegn Dele Alli og Harry Kane. Gegn Newcastle gerðu þeir ekki mörg mistök en þeir sköpuðu mikið stress í vörninni."
Athugasemdir