Tæknisérfræðingar Sky sjónvarpsstöðvarinnar hafa unnið hörðum höndum að því að gera tölvuteiknaðar myndir af atvikinu umdeilda í leik Liverpool og Chelsea í gær. Samkvæmt þeim myndum fór knötturinn aldrei innfyrir marklínuna í sigurmarki Liverpool.
Samkvæmt myndunum náði William Gallas varnarmaður Chelsea að bjarga á marklínu áður en boltinn fór innfyrir. Roman Slysko línuvörður dæmdi þó boltann inni og vann Liverpool leikinn 1-0.
Hér til hliðar má sjá tölvuteiknaða mynd af "markinu" hjá Liverpool í gær.
Athugasemdir