Guðjón Þórðarson sem eins og flestir vita hætti hjá Keflavík í gær staðfesti við heimasíðu Sky í dag að hann væri til í að skoða þann möguleika taka við liði Notts County sem leikur í ensku 2.deildinni (gömlu 3.deildinni). Guðjón hefur verið mikið orðaður við Notts en hann neitaði því í viðtali á Stöð 2 í gær að hann hefði talað við liðið.
Guðjón sagði við Sky í dag ,,Ég tel að Notts County hafi dálitla sögu og gæti verið gott tækifæri. Ég hætti (hjá Keflavík) af persónulegum ástæðum. Þeir uppfylltu ekki skyldur sínar í samningnum. Núna mun ég skoða mína kosti og mína möguleika."
Sjá einnig:
Fréttatilkynning frá Keflavík
Guðjón í athyglisverðu viðtali við DV
Guðjón segist ekki hafa fengið tilboð erlendis frá
Keflvíkingar ætla að lögsækja Guðjón
Guðjón hættur hjá Keflavík!
Athugasemdir