Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 08. maí 2018 22:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Hughes himinlifandi í leikslok
Mynd: Getty Images
Mark Hughes var sáttur með úrslit kvöldsins.

„Þetta voru stór úrslit fyrir okkur. Ég kom seint inn í þetta og þurfti að fá viðbrögð frá leikmönnum sem höfðu villst aðeins af leið. Ég verð að segja að síðan ég kom hingað hafa þeir lagt hart að sér og jafnvel þegar úrslitin voru gegn okkur misstu þeir ekki trúna, " sagði Hughes.

„Við þurftum að koma hingað og sigra. Ef við hefðum ekki unnið í dag hefði þetta verið mjög erfitt fyrir okkur. Þetta er ekki búið ennþá en í kvöld komum við okkur í góða stöðu til að halda okkur upp. "

Beðin um viðbrögð við því að liðið hafi þurft að skipta um hótel með skömmum fyrirvara hafði hann þetta að segja.

„Okkur grunaði að kannski yrðu einhver myrkraverk að störfum en við létum það ekki trufla okkur. Í raun notuðum við það til góðs. Það hjálpaði okkur að einbeita okkur." sagði Hughes.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner