Við á Fótbolti.net ætlum í sumar að reyna að fá þekktan einstakling til að spá í leiki umferðarinnar í efstu deild karla. Heimir Karlsson sjónvarpsmaður spáði í leiki 2.umferðar fyrir okkur og fékk alls 4 stig af 15 mögulegum. Heimir giskaði á hárrétta markatölu í leik Vals og ÍA sem fór 2-0 og þá hafði Heimir réttan sigurvegara í leik Grindvíkinga og FH.
Einstaklingarnir sem spá fyrir okkur fá stig ef þeir eru getspakir. Fyrir að giska á réttan sigurvegara fær hann eitt stig en þrjú ef markatalan er líka rétt. Þannig er mest er hægt að fá 15 stig.
Heimir skoraði á Hilmar Björnsson dagskrárstjóra Sýnar til að spá í 3.umferð. Hilmar var í Tyrklandi í gær á úrslitaleik Meistaradeildarinnar og var í London á heimleið þegar að við á Fótbolti.net náðum á hann.
Hilmar ætlar að skora á gömlu kempuna Guðna Bergsson til að spá í 4.umferð.
Spá Hilmars fyrir 3.umferð:
Keflavík - KR 1-1
ÍA - Grindavík 1-0
Fylkir - Valur 3-1
FH - ÍBV 3-0
Fram - Þróttur 1-2
Fyrri spámenn:
Heimir Karlsson (2.umferð)
Athugasemdir