Fótbolti.net hefur í sumar fengið þekkta einstaklinga til að spá um leiki umferðarinnar í Landsbankadeild karla. Hermann Gunnarsson spáði í leiki 6. umferðar og fékk 2 stig af 15 mögulegum og er hann með 4-5 besta árangurinn í þessum létta leik okkar í sumar.
Einstaklingarnir sem spá fyrir okkur fá stig ef þeir eru getspakir. Fyrir að giska á réttan sigurvegara fær hann eitt stig en þrjú ef markatalan er líka rétt. Þannig er mest er hægt að fá 15 stig.
Staðan í keppninni:
1. Þorgrímur Þráinsson (5.umferð) 5 stig
2-3. Heimir Karlsson (2.umferð) 4 stig
2-3. Hilmar Björnsson (3.umferð) 4 stig
4-5. Guðni Bergsson (4.umferð) 2 stig
4-5. Hermann Gunnarsson (7.umferð) 2 stig
6. Dóra Stefánsdóttir (6.umferð) 0 stig
Hermann skoraði á Eyjólf Sverrisson þjálfara U-21 árs landsliðs Íslendinga til að spá í leiki 8.umferðarinnar. Spá Eyjólfs má sjá hér að neðan en hann skorar á Einar Kárason, Framara og rithöfund til að spá í leiki 9.umferðar.
Fylkir - FH 1-1
Grindavík - Þróttur 0-0
Fram - Keflavík 1-0
Valur - KR 2-2
ÍA - ÍBV 2-0
Hermann Gunnarsson (7.umferð) - 2 stig
Dóra Stefánsdóttir (6.umferð) - 0 stig
Þorgrímur Þráinsson (5.umferð) - 5 stig
Guðni Bergsson (4.umferð) - 2 stig
Hilmar Björnsson (3.umferð) - 4 stig
Heimir Karlsson (2.umferð) - 4 stig
Athugasemdir