Man Utd líklegast að fá Olise - Man Utd til í að hlusta á tilboð í Rashford - Juve leiðir kapphlaupið um Greenwood
banner
   lau 06. ágúst 2005 14:25
Hafliði Breiðfjörð
Camara til Wigan (Staðfest)
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
Wigan hafa loksins náð samkomulagi við Henri Camara en þeir kaupa hann á 3 milljónir punda af Wolves. Camara skrifaði undir þriggja ára samning við Wigan í dag eftir að félagið hafði náð samkomulagi við hann um launakröfur.

Í síðustu viku hafði Wigan hætt við að reyna að fá Camara vegna þess að Paul Jewell stjóri Wigan taldi launakröfurnar of háar.

,,Henri hefur skrifað undir samning og komist í gegnum læknisskoðun. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur," sagði Jewell í dag. ,,Hann hefur sannað sig sem markaskorari og hefur gert gott á meðal þeirra bestu."
Athugasemdir
banner