Olympique Lyon hafa samþykkt að selja Ghana manninn Michael Essien til Chelsae en þetta staðfesti Jean Michel Aulas forseti franska félagsins nú í kvöld.
,,Við höfum komist að samkomulagi í meginatriðum," sagði Aulas við blaðamenn eftir 1-1 jaftefli Lyon gegn Marseille í frönsku deildinni.
,,Það eru enn nokkur smáatriði sem þarf að ganga frá. Ef ekkert óvænt kemur upp á síðustu mínútu þá mun hann fara."
Chelsea hefur verið að reyna að kaupa Essien í allt sumar en hefur illa gengið enda hefur Aulas verið sérstaklega erfiður í samningaviðræðum.
Athugasemdir