Fótbolti.net hefur í sumar fengið þekkta einstaklinga til að spá í leiki umferðarinnar í Landsbankadeild karla. Logi Ólafsson annar landsliðsþjálfarana spáði í leikina í 15.umferð og fékk hann 4 stig af 15 mögulegum með því að giska á hárrétt úrslit í leik Keflavíkur og ÍA og á réttan sigurvegara í leik FH og Vals.
Einstaklingarnir sem spá fyrir okkur fá stig ef þeir eru getspakir. Fyrir að giska á réttan sigurvegara fær hann eitt stig en þrjú ef markatalan er líka rétt. Þannig er mest er hægt að fá 15 stig.
Staðan í keppninni:
1. Þorgrímur Þráinsson (5.umferð) 5 stig
2-4. Heimir Karlsson (2.umferð) 4 stig
2-5. Hilmar Björnsson (3.umferð) 4 stig
2-5. Eyjólfur Sverrisson (8.umferð) 4 stig
2-5. Logi Ólafsson (15.umferð) 4 stig
6. Pétur Pétursson (12.umferð) 3 stig
7-9. Guðni Bergsson (4.umferð) 2 stig
7-9. Hermann Gunnarsson (7.umferð) 2 stig
7-9. Sigurður Jónsson (10.umferð) 2 stig
10-12. Einar Kárason (9.umferð) 1 stig
10-12. Daníel Helgason (11.umferð) 1 stig
10-12. Arnór Guðjohnsen (14.umferð) 1 stig
13. Dóra Stefánsdóttir (6.umferð) 0 stig
Logi skoraði á Leif Helgason stjórnarmann hjá FH og framhaldsskólarakennara til að spá í leiki 16.umferðar. Spá Leifs má sjá hér að neðan en hann skorar á Emil Hallfreðsson leikmann Tottenham að spá í leiki 17.umferðar.
Grindavík 1 - 2 Fram
Þetta er síðasta von Grindvíkinga. Þennan leik verða þeir að vinna ef þeir ætla að hanga uppi. Mér sýnist þeir hins vegar vera í verulegum vandræðum. Lið Fram er sterkara að mínu mati og þeir vinna 2-1.
ÍA 0 - 2 FH
Titillinn er í húsi hjá FH og þá er hætta á spennufalli. Markmiðið hlýtur þó að vera fullt hús úr því sem komið er. Á undanförnum árum hafa FH ingar ekki unnið marga leiki á Skaganum en nú eru þeir með mun sterkara lið en Skagamenn. FH vinnur 2-0.
Þróttur R. 0 - 3 KR
Því miður held ég að þetta sé búið hjá Þrótti í bili. Þótt KR ingar hafi ekki verið sannfærandi í sumar vinna þeir þennan leik örugglega 3-0.
Valur 4 - 0 ÍBV
Valur tapaði fyrir ÍBV í Eyjum og þeir ætla sér stóra hluti í þessum leik. Eyjamenn hafa ekki fengið mörg stig á útivelli í sumar og þar verður ekki breyting á. Valsmenn koma fram hefndum og vinna örugglega 4-0.
Fylkir 2 - 1 Keflavík Fylkir er að rétta úr kútnum og sigurinn á Fram gefur þeim byr í seglin. Keflvíkingar léku hins vegar erfiðan Evrópuleik vikunni og það tekur sinn toll. Fylkir vinnur 2-1.
Logi Ólafsson (15.umferð) - 4 stig
Arnór Guðjohnsen (14.umferð) - 3 stig
Pétur Pétursson (12.umferð) - 3 stig
Daníel Helgason (11.umferð) - 1 stig
Sigurður Jónsson (10.umferð) - 2 stig
Einar Kárason (9.umferð) - 1 stig
Eyjólfur Sverrisson (8.umferð) - 4 stig
Hermann Gunnarsson (7.umferð) - 2 stig
Dóra Stefánsdóttir (6.umferð) - 0 stig
Þorgrímur Þráinsson (5.umferð) - 5 stig
Guðni Bergsson (4.umferð) - 2 stig
Hilmar Björnsson (3.umferð) - 4 stig
Heimir Karlsson (2.umferð) - 4 stig
Athugasemdir