Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 01. september 2005 18:35
Bolti með örflögu notaður á HM 2006?
FIFA hefur greint frá því að bolti með örflögu sem segir til um hvort boltinn fari yfir marklínu eða ekki verði notaður á HM í Þýskalandi á næsta ári ef hann reynist vel í Perú þar sem HM U17 ára liða fer fram. Boltinn sendir merki beint til dómarans ef boltinn fer yfir línuna og kemur þetta að sjálfsögðu í veg fyrir dómaramistök sem geta orðið dýrkeypt á stórmóti sem þessu.

,,Við munum klárlega notað boltann í Þýskalandi ef tilraunaverkefnið heppnast" sagði Sepp Blatter forseti FIFA í dag en ákvörðunin verður tekin í október.

HM ungmennaliða fer fram í Perú 16. september til 2. október og eftir það verður ákveðið hvort boltinn verði notaður eða ekki. Ef ekkert bjátar á í notkun á þessari nýju tækni verður boltinn því kynntur opinberlega en þetta er bylting í knattspyrnuheiminum sem ekki eru allir hrifnir af.

,,Alþjóðanefndin mun vera viðstödd síðustu viku mótsins í Perú til að sjá hvernig þetta kerfi virkar" hélt Blatter áfram. ,,Marklínutæknin er alveg nóg í bili. Fótboltinn verður að halda sinni sögu og mistök verða alltaf hluti af leiknum. Ef við gerum knattspyrnuna of tæknivæddan fer allur dýrðarljóminn af henni."
Slapp