Ingvi Sveinsson, Ólafur Tryggvason og Davíð Logi Gunnarsson hafa allir gert nýjan tveggja ára samning við fyrstu deildar lið Þróttar R en þetta kemur fram á heimasíðu liðsins.
Bæði Ingvi og Ólafur geta leikið í bakverði og á kanti og spiluðu þeir báðir fjórtán leiki í Landsbankadeildinni í sumar. Ingvi skoraði eitt mark, sigurmark í 3-2 sigri á Grindavík. Ólafur skoraði tvívegis og meðal annars eina markið í 1-0 sigri Þróttar á Fylki.
Davíð Logi sem er sóknarmaður lék hinsvegar tvo leiki í Landsbankadeildinni í sumr en náði ekki að skora.
Athugasemdir