Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
   mán 06. febrúar 2006 19:47
Hafliði Breiðfjörð
Grétar Rafn fær óvæntan samning hjá AZ Alkmaar
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson skrifaði í dag undir nýjan samning við hollenska félagið AZ Alkmaar sem gildir til sumarsins 2011 og vakti það mikla athygli enda gekk hann til liðs við félagið fyrir hálfu ári og gerði þá samning sem gildir til 2008 með möguleika á tveimur árum til viðbótar. Hollenska félagið vildi hinsvegar verðlauna hann fyrir góða frammistöðu með þessum samning.

,,Þeir voru nokkuð ánægðir með hvernig ég hef staðið mig og þetta er bara merki um að þeir hafa trú á mér og öðrum leikmönnum sem þeir eru í samningaviðræðum við. Það að fá Jóa Kalla líka sýnir hvað liðið ætlar sér í framtíðinni," sagði Grétar Rafn í samtali við Fótbolta.net í dag.

,,Ég er mjög ánægður og mjög stoltur af því að hafa á svo stuttum tíma náð að stimpla mig vel inn. Það er mjög óvenjulegt að manni sé boðinn nýr samningur þegar svona stutt er liðið af samningnum. Ég var nú með samning til 2010, eða 2008 með möguleika á tveimur árum til viðbótar."

,,Ég er mjög ánægður og stoltur af því hversu vel liðið, þjálfarinn, aðdáendur og aðrir hafa tekið mér. Ég er mjög sáttur við hvernig mér hefur gengið hérna. Það hefur líka verið frábært ár hjá mér og þetta var bara til að toppa það."


Marcel Brands tæknilegur stjóri AZ Alkmaar sagði í samtali við vefsíðu félagsins, www.az-alkmaar.nl, að Grétar hafi heillað þá innan sem utan vallar.

,,Við erum ánægðir með hversu mikið Grétar hefur bætt sig undanfarna mánuði, bæði innan sem utan vallar," sagði Brands. ,,Hann hefur verið góð viðbót við hópinn og þess vegna höfum við gefið honum samning."

AZ Alkmaar tilkynnti einnig um það í dag að Jóhannes Karl Guðjónsson hafi gert fjögurra ára samning við félagið en hann kemur eftir sumarið frá enska félaginu Leicester City eins og áður hafði verið greint frá hér á Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner
banner