Gunnar Sigurðsson og Helgi Sigurðsson hampa sigurlaununum.
Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
fim 02.mar 2006 23:12 Hafliði Breiðfjörð,
Framarar Reykjavíkurmeistarar
- Fram 2-0 Víkingur
1-0 Þorbjörn Atli Sveinsson
2-0 Ingvar Ólason
Framarar urðu í kvöld Reykjavíkurmeistarar eftir sigur 2-0 sigur á Víkingum í Egilshöll.

Þorbjörn Atli Sveinsson kom Fram yfir á 34. mínútu með þrumuskoti rétt fyrir innan vítateig eftir að Ingvar Kale markvörður Víkinga hafði varið boltann út.

Undir lok fyrri hálfleiksins var Grétar Sigfinnur Sigurðsson varnarmaður Víkinga dæmdur brotlegur á Helga Sigurðssyni á vítateigslínunni og Grétar fékk áminningu og aukaspyrna dæmd. Ingvar Ólason tók spyrnuna og skaut bananabolta framhjá vörn Víkinga og í markið, staðan 2-0 fyrir Fram.

Víkingar sóttu mikið í síðari hálfleik og settu meðal annars miðvörðinn ógurlega Grétar Sigfinn Sigurðsson í sóknina en það bar ekki árangur þó því hafi farið nærri nokkrum sinnum.

Þeir komust næst því að skora eftir rétt rúmlega klukkutíma leik þegar Grétar átti þrumuskot utan af velli í stöngina og út. Grétar skoraði nokkrum mínútum síðar sem var dæmt af vegna rangstöðu.

Þetta var fyrsti tapleikur Víkinga á árinu en þeir höfðu áður lagt Framara í deildabikarnum.

Hér að neðan má sjá glæsilegar myndir sem Daníel Rúnarsson ljósmyndari Fótbolta.net tók á leiknum í kvöld. Hægt er að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
athugasemdir
Nýjustu fréttirnar