Sancho, Sesko, Mac Allister, Ten Hag, Raya og fleiri góðir koma við sögu
banner
   þri 02. maí 2006 13:53
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Crouch rétti maðurinn til að fylla skarð Rooney?
Í framlínunni hjá enska landsliðinu í sumar?
Í framlínunni hjá enska landsliðinu í sumar?
Mynd: Getty Images
Rafael Benitez, stjóri Liverpool, er handviss um að Peter Crouch sé rétti maðurinn til að fylla skarð Wayne Rooney ef hann getur ekki tekið þátt í heimsmeistaramótinu í sumar en nú hefur Sir. Alex Ferguson sagt að það sé ólíklegt að hann geti farið til Þýskalands í sumar.

,,Hann hefur allt til að höndla ábyrgðina. Það sem við verðum að muna hvernig hann brást við þegar hann fór í gegnum alla þessa leiki án þess að skora. Fólk talaði og talaði um það en hann hélt áfram að leggja hart að sér og hann hefur núna skorað tólf mörk fyrir okkur á þessu tímabili. Hann hefur næg gæði og reynslu fyrir England," sagði Benitez.

Það muna líklega margir eftir því þegar púað var á Peter Crouch þegar hann kom inná fyrir Shaun-Wright Phillips í 1-0 sigri á Austurríki í vetur og púað var á hann en það var aðeins hans þriðji landsleikur fyrir England.
Athugasemdir
banner
banner