Carles Puyol fyrirliði Barcelona er ánægður með komu Eiðs Smára til félagsins en landsliðsfyrirliðinn mun skrifa undir fjögurra ára samning síðar í dag en er í læknisskoðun þessa stundina. Kaupverðið er 8 milljónir punda frá Chelsea.
,,Ég veit ekki hvort hann hafi þegar skrifað undir en ég hef spilað gegn honum og hann er frábær leikmaður," sagði Puyol.
,,Hann er mjög sterkur, hraður, skapar mörk og getur gert mjög vel fyrir okkur. Hann er leikmaður sem getur spilað á miðjunni og í sókninni."
Sjá einnig:
ÍR og Valur hagnast ekki á sölu Eiðs Smára
Öll helstu tilþrif Eiðs Smára á myndbandi
Eiður Smári verður númer 7 hjá Barcelona
Eiður Smári stenst læknisskoðun hjá Barcelona
Eiður Smári annar Íslendingurinn hjá Barcelona
Puyol spenntur fyrir Eiði Smára
Eiður Smári skrifar undir hjá Barcelona undir hádegi
Arnór á leið til Spánar að ræða við Barcelona
Athugasemdir