Þremur argentínskum stuðningsmönnum í hjólastól var hent af leik Argentínu og Hollandi í síðustu viku. Ástæðan var sú að þeir voru ekki fatlaðir heldur voru aðeins í hjólstól til að fá ódýrari miða á leikinn.
Einn maðurinn eyðilagði allt ráðabruggið fyrir hina þegar hann byrjaði að hoppa af kæti þegar leið á leikinn. Hann útskýrði það fyrir öryggisvörðum að kraftaverk hefði gerst en þeir trúðu honum ekki. Þeim var því öllum þrem vísað af leikvanginum.
"Við erum miður okkar yfir því sem við gerðum en við höfðum ekkert val. Við höfðum enga peninga til að kaupa venjulega miða og því ákváðum við að gera þetta," sagði Claudio, einn af mönnunum þremur.
Athugasemdir