Umfjöllun: Keflavík og Valur skildu jöfn í baráttunni um annað sætið
Keflavík 1-1 Valur
0-1 Guðmundur Benediktsson (25)
1-1 Guðmundur Steinarsson (35)
Það var mikið í húfi á Keflavíkurvelli í dag þegar heimamenn tóku á móti Val í næstsíðustu umferðinni í Landsbankadeild karla. Fyrir leikinn voru Valur í öðru sæti með 27 stig en Keflavík með 23. Þar á milli var KR með 26 en þeir tóku á móti Grindavík í Frostaskjóli.
Keflavík fóru betur af stað í leiknum án þess þó að reyna á Kjartan Sturluson í markinu fyrr en Guðmundur Steinarsson átti lúmska aukaspyrnu eftir fimmtán mínútna leik sem Kjartan varði út í teig en þar voru þeir rauðklæddu sem náðu að hreinsa.
Fyrsta mark leiksins kom svo á 25. mínútu. Garðar Jóhannson fékk boltann út á vinstri og gaf hann fyrir þar sem Guðmundur Benediktsson tók hann í fyrsta og lagði hann framhjá Ómari Jóhannssyni í markinu. Mikill léttir fyrir Guðmund sem hefur ekki skorað lengi.
Tíu mínútum síðar jöfnuðu síðan heimamenn metin. Barry Smith braut á Hallgrími Jónassyni innan vítateigs og dæmdi Erlendur Eiríksson umsvifalaust vítaspyrnu. Fyrirliðinn Guðmundur Steinarsson tók spyrnuna sem Kjartan varði en Guðmundur fylgdi á eftir og skoraði framhjá Kjartani.
Seinni hálfleikur fór ágætlega af stað en engin almennileg marktækifæri litu þó dagsins ljós og var hann engan vegin jafn skemmtilegur og sá fyrri. Það var ekki fyrr en átta mínútum fyrir leikslok að Matthís Guðmundsson átti fínan skalla að marki heimamanna en Ómar Jóhannsson varði mjög vel.
Síðasta marktækifæri leiksins átti síðan Baldur Sigurðsson en Kjartan varði skalla hans í horn, sem ekkert varð úr. Lokatölur því 1-1 og félögin liggja nú í þriðja og fjórða sæti eftir sigur KR-inga á Grindavík.
Keflavík (4-4-2): Ómar Jóhannsson, Guðjón Antoníusson, Branislav Milicevic, Guðmundur Mete, Kenneth Gustafsson, Jónas Guðni Sævarsson, Baldur Sigurðsson, Símun Eiler Samuelsson, Hallgrímur Jónasson (Einar Orri Einarsson 74), Stefán Örn Arnarsson (Þórarinn Kristjánsson 67), Guðmundur Steinarsson.
Ónotaðir varamenn: Magnús Þormar, Garðar Eðvaldsson, Ragnar Magnússon, Benedikt Birkir Hauksson, Bjarki Þór Frímannsson.
Valur (4-4-2): Kjartan Sturluson, Barry Smith, Atli Sveinn Þórarinsson, Birkir Már Sævarsson, Kristinn Hafliðason, Sigurbjörn Örn Hreiðarsson, Pálmi Rafn Pálmason, Matthís Guðmundsson, Baldur Aðalsteinsson, Guðmundur Benediktsson (Árni Ingi Pjetursson 89), Garðar Jóhannsson (Örn Kató Hauksson 27).
Ónotaðir varamenn: Kristinn Geir Guðmundsson, Hálfdan Gíslason, Baldur Þórólfsson, Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, Andri Valur Ívarsson, Örn Kató Hauksson.
Áhorfendur: 1018
Dómari: Erlendur Eiríksson
Veður: Fínt veður en smá gola