Man Utd og Liverpool vilja Cherki - Arsenal skoðar Coman - Tottenham og Man Utd vilja markvörð Frankfurt - Chelsea reyndi við Van Dijk - Garnacho...
   mið 20. september 2006 12:00
Hafliði Breiðfjörð
Landsbankadeild 8/12: Meirihlutinn fær borgað fyrir að spila
Mikill meirihluti leikmanna Landsbankadeildar karla fá borgað fyrir að leika knattspyrnu en þó eru ekki allir sáttir við launin sem þeir fá. Þetta kemur fram í könnun sem Fótbolti.net framkvæmdi meðal leikmanna deildarinnar í vor þegar mótið var að byrja.

78% leikmannana segjast fá borgað fyrir að leika knattspyrnu en 59% segjast vera sáttir við laun sín. 68% leikmanna deildarinnar hafa annað starf með boltanum en 32% starfa ekki með fótboltanum.

Ekki var spurt um upphæð launa leikmannana í könnuninni en þó er ljóst að allur gangur er á hversu mikið menn fá greitt. Allt frá fáum tugum þúsunda á ári og allt upp í hundruði þúsunda á mánuði.

Starfar þú með boltanum?
Já - 68%
Nei – 32 %

Færð þú borgað fyrir að leika knattspyrnu?
Já – 78%
Nei – 22 %
Ef já ertu sáttur með laun þín?
Já - 59%
Nei – 41 %

Í maí 2006 lagði Fótbolti.net könnun fyrir alla leikmenn Landsbankadeildarinnar. Svarhlutfallið var mjög gott því 175 leikmenn deildarinnar svöruðu könnuninni. Nú höfum við unnið úr niðurstöðum könnunarinnar og á næstu dögum munum við birta daglega fróðlegar upplýsingar sem þar komu fram. Klukkan 12:00 á hádegi alla daga fram að lokaumferð deildarinnar 23. september mun birtast hér á síðunni nýr moli úr könnuninni.

Sjá einnig:
Landsbankadeild 1/12: Skemmtilegasti og erfiðasti völlurinn
Landsbankadeild 2/12: Flestir töldu Tryggva bestan
Landsbankadeild 3/12: Flestir ætla að spila áfram þó lið þeirra falli
Landsbankadeild 4/12: Flestir leika í adidas skóm
Landsbankadeild 5/12: Flestir ánægðir með landsliðsþjálfarann
Landsbankadeild 6/12: Ekki gáfulegt að reka þjálfarann
Landsbankadeild 7/12: Flestir vilja fjölga í deildinni
Athugasemdir
banner