Spænska félagið Valencia vill fá Rúrik Gíslason miðjumann Charlton og U-21 árs landsliðsins á láni út tímabilið en þetta kom fram í Morgunblaðinu í morgun.
,,Mér finnst þetta frábært tækifæri. Smá verðlaun fyrir að hafa staðið sig vel að stórlið hafi áhuga,” sagði Rúrik við Fótbolti.net í dag.
Rúrik gekk til liðs við Charlton í fyrra en hann kom frá uppeldisfélagi sínu HK sem hann lék tólf leiki með í fyrstu deildinni sumarið 2005. Í kjölfarið var hann valinn efnilegasti leikmaður deildarinnar í vali fyrirliða og þjálfara sem að Fótbolti.net stóð fyrir.
Áður var Rúrik á mála hjá Anderlecht í Belgíu en þessi átján ára gamli leikmaður hefur skorað eitt mark í fimm leikjum með U-21 árs landsliðinu og þá hefur hann alls skorað þrjú mörk í þrettán leikjum með U-19 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir



