Sjónvarpsstöðin Sýn mun hafa beinar útsendingar úr fjölda leikja Landsbankadeildarinnar í sumar. Hér er Hörður Magnússon íþróttafréttamaður stöðvarinnar með Baldur Sigurðsson leikmann Keflavíkur í viðtali.
Sjónvarpsstöðin Sýn hefur tekið ákvörðun um hvaða leikir verði sýndir í beinni útsendingu á stöðinni í fyrstu sex umferðum Landsbankadeildarinnar en um er að ræða ellefu leiki.
Landsbankadeildin hefst næstkomandi Laugardag með opnunarleik ÍA og FH á Akranesi en sá leikur er einn þriggja úr fyrstu umferðinni sem verða beint á Sýn.
Hinir eru leikur Valsmanna og nýliða Fram á Laugardalsvelli en liðin spila bæði heimaleiki sína á þeim velli í sumar. Þriðji leikurinn er svo viðureign KR og Keflavíkur á KR-velli.
Hér að neðan má sjá hvaða leikir verða í beinni útsendingu í fyrstu sex umferðunum en sýndir verða leikir með öllum liðunum í deildinni í fyrstu sex umferðunum.
Flestir leikjanna eru með FH, KR og ÍA eða fjórir, tveir leikir með liðum Vals, Keflavíkur og Fram og einn leikur með HK, Fylki, Víkingi og Breiðablik.
1. umferð:
ÍA - FH (Laugardaginn 12. maí - 14:00)
Valur - Fram (Sunnudaginn 13. maí - 16:00)
KR - Keflavík (Mánudaginn 14. maí - 20:00)
2. umferð:
Keflavík - FH Sunnudaginn 20. maí - 20:00)
HK - ÍA (Mánudaginn 21. maí - 20:00)
3. umferð:
Valur - KR (Fimmtudaginn 24. maí - 20:00)
4. umferð:
Fylkir - ÍA (Mánudaginn 28. maí - 17:00)
Fram - FH (Þriðjudaginn 29. maí - 20:00)
5. umferð:
Víkingur - Breiðablik (Fimmtudaginn 7. júní - 20:00)
ÍA - KR (Sunnudaginn 10. júní - 20:00)
6. umferð:
KR - FH (Fimmtudaginn 14. júní - 20:00)
Athugasemdir



