Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 15. maí 2007 15:24
Magnús Már Einarsson
2.deild: Leikmaður 1.umferðar - Denis Cardaklija (Sindri)
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Fótbolti.net mun í sumar velja leikmann umferðarinnar í efstu þremur deildum karla. Fyrstu umferðinni í annarri deild karla lauk í gær og fyrir valinu sem leikmaður umferðarinar þar var Denis Cardaklija 18 ára gamall markvörður Sindra sem varði eins og berserkur í 2-1 sigri liðsins á Selfyssingum á sunnudaginn.

Denis Cardaklija
Denis Cardaklija er markvörður Sindra úr annarri deildinni. Denis er 18 ára gamall er á sínu fyrsta tímabili með meistaraflokki Sindra. Hann er sonur Hajrudin Cardaklija sem varði mark Blika, Leifturs og Sindra á sínum tíma.
Denis segir valið hafa komið sér á óvart. ,,Já þetta kemur mér smá á óvart, þetta var fyrsti deildarleikurinn minn og þegar ég fékk símtalið frá ykkur þá var ég nývaknaður og hélt að einhver hafi verið að fíflast í mér," sagði Denis sem varði eins og áður sagði vel í leiknum.

,,Já ég átti fínan leik en ég verð að hrósa strákunum fyrir glæsilega baráttu og verð frekar að segja að liðsheildin hafi unnið leikinn en ekki einhver einn úr liðinu. Samt er alltaf gaman að heyra svona að maður hafi verið að standa sig," sagði Denis sem telur þetta vera sinn besti leikur með Sindra.

,,Já ég mundi segja það, í fyrra spilaði ég einn leik með meistaraflokk og það var á móti Hetti í bikarnum og mér fannst það alltaf vera besti leikurinn minn með meistaraflokk en ég held að þessi toppi hann, ekki spurning."

Eins og fyrr segir er Denis átján ára gamall en hann byrjaði að æfa mark í þriðja flokki og í ár er fyrsta árið sem hann leikur á fullu með meistaraflokki

,,Það kom nýr þjálfari inn í vetur og margt breyttist, æfingarnar urðu öðruvísi og erfiðari að sumu leiti en ég byrjaði ekki að æfa á fullu fyrr en í janúar og hef verið að æfa síðan nokkuð mikið. Ég byrjaði fyrst sem útileikmaður þegar ég var í yngri flokkum en síðan þegar ég kom í 3.flokk fór ég í markið og fannst eins og ég ætti frekar heima milli stanganna en annarsstaðar á vellinum."

,,Undanfarin ár hafa verið frekar upp og niður, ég hef ekki fengið að spila jafn mikið og núna á undirbúningstimabilinu, deildabikarnum og svo náttúrulega þessum fyrsta deildarleik mínum á móti Selfoss á sunnudag."


Hajrudin Cardaklija er faðir Denis en hann lék á sínum tíma með Leiftri og Breiðablik í efstu deild áður. Hann fór síðan að þjálfa og spila með Sindra áður en að hann hætti eftir sumarið 2002.

Denis stefnir á að vera betri en pabbi sinn var á sínum tíma. ,,Ég er oft spurður að þessu og ég stefni auðvitað á að vera betri en hann en sá gamli var rosalegur þegar hann var upp á sitt besta en ég ætla allavega að reyna að slá metið hans yfir varðar vítaspyrnur og gaman að segja frá því að hann heldur enn i dag að hann sé sneggri en ég," sagði Denis en faðir hans hefur gefið honum góð ráð.

,,Já bara síðan ég byrjaði að sparka í bolta þegar ég var lítill hefur hann alltaf sagt mér að njóta þess að vera í fótbolta og hafa gaman að þessu og síðan er hann í raun markmannsþjálfarinn minn og gefur mér alltaf góð ráð og styður mig 100 % í þessu öll saman."

,,Hann er mjög stoltur að ég hafi komist svona ungur í markið í meistaraflokki og líka bara það að eiga góðan fyrsta deildarleik og reyna að gera allt í því að hjálpa félaginu að vinna leiki og ná góðum árangri," sagði Denis en sumarið leggst vel í hann.

,,Það leggst mjög vel í mig, fyrsta tímabilið mitt í raun og eftir þennan fyrsta leik sá maður að strákarnir eru að koma dýrvitlausir inn í þetta allt saman og ætla sér að berjast alveg fram í síðasta leik til að afsanna þessa skemmtilegu spá sem við fengum hjá ykkur á Fótbolti.net."

,,Miðað við frammistöðuna gegn Selfyssingum fannst mér baráttan vera í hámarki, við vorum kannski ekki endilega mikið í því að halda boltanum en við vörðumst frábærlega og kláruðum leikinn í þeim skyndisóknum sem við fengum og nú ættu öll hin liðin í deildinni að vita að það þýðir ekki að reikna með þrem auðveldum stigum gegn Sindra í sumar, það verður ekkert gefið eftir frá Hornfirðingunum og það verður barist um öll 3 stig í hverjum einasta leik,"
sagði Denis Cardaklija markvörður Sindra að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner