Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
banner
   mið 16. maí 2007 15:12
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Mourinho biður fjölmiðla um að hætta að elta börnin sín
Mourinho ásamt börnum sínum þeim Zuca og Matilde.
Mourinho ásamt börnum sínum þeim Zuca og Matilde.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Chelsea hefur beðið fjölmiðla um að hætta að elta börnin sín á leið í skólann. Mourinho var handtekinn í gærkvöldi eftir deilur við lögreglu og fulltrúa heilbrigðisyfirvalda útaf hundinum hans.

Honum var hins vegar sleppt en á fréttamannafundi í dag skammaði hann fjölmiðla fyrir að elta börnin hans þegar þau fara í skólann.

,,Ef ég þarf að segja eitthvað meira um þetta er það að ég vil vinsamlegast biðja ykkur um að hafa samband við félaga ykkar og láta krakkana mína í friði," sagði Mourinho við Sky Sports News.

,,Ef þú vilt hjálpa mér vinsamlegast gerðu það. Að fara í skólann eltur af 10 kvikmyndatökuvélum, 30-40 ljósmyndurum og 20 manneskjum í viðbót er ekki góð staða fyrir krakkana."

,,Þið hafið mig allan tímann, þið hafið mig þegar að þið viljið fá eitthvað svo njótið þess og látið krakkana mína halda áfram með sitt líf,"
sagði Mourinho að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner