Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fim 31. maí 2007 11:53
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Owen Hargreaves til United (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Owen Hargreaves mun verða leikmaður Manchester United þann 1. júli. Hann hefur staðist læknisskoðun hjá félaginu og mun skrifa undir samning sinn þann 1. júlí eins og fyrr segir.

Ferguson hefur í langan tíma reynt að fá Hargreaves til United en mistókst það síðasta sumar og í janúar. Þessi 26 ára miðjumaður kemur frá Bayern Munchen.

Þetta hefur verið erilsöm vika hjá United því í gær greindu þeir frá því að Nani leikmaður Sporting og Anderson leikmaður Porto væru að koma til liðsins, þeir eiga þó eftir að fara í læknisskoðun áður en skrifað verður undir samning.

Talið er að kaupverðið á Hargreaves sé í kringum 17 milljónir pund og að Nani og Anderson hafi verið á rúmar 30 miljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner