Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 01. júlí 2007 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: BBC 
Malouda: Ég hef talað við Jose Mourinho
Mynd: Getty Images
Florent Malouda leikmaður Lyon segir að hann vilji fara til Chelsea og segist hann hafa rætt við Jose Mourinho stjóra félagsins. Þrátt fyrir það hafa félögin ekki komist að samkomulagi um kaupverðið á Malouda en Lyon hafnaði 12 milljóna punda tilboði í hann í vikunni sem var að líða.

,,Það væri betra fyrir alla ef að félagaskipti mín í Chelsea myndu klárast af því ég vill fara," sagði Malouda sem er frá Frakklandi og er 27 ára gamall.

,,Ég hef ákveðið mig. Ég hef talað við Jose Mourinho. Ég hef haft samband, en það sama á ekki við um Liverpool þar sem voru of mikið af milligöngumönnum," sagði Malouda að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner