Heimild: Heimasíða KSÍ
Bjarni Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, hefur verið ráðinn sem markmannsþjálfari í teymi Ólafs Jóhannessonar, þjálfara A-landsliðs karla.
Ólafur var á dögunum ráðinn landsliðsþjálfari og Pétur Pétursson var ráðinn aðstoðarmaður hans.
Bjarni, sem lék 41 leik fyrir A-landslið Íslands á árunum 1980-1991, hefur starfað sem markmannsþjálfari hjá ýmsum félögum á síðustu árum. Hann lék á sínum tíma með ÍA, Val og Brann í Noregi.
Áður var Birkir Kristinsson markmannsþjálfari A-landsliðsins en Bjarni hefur nú tekið við starfinu.
Heimasíða KSÍ.
Athugasemdir