Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   lau 09. febrúar 2008 16:46
Hafliði Breiðfjörð
Reykjavíkurmótið: Fjölnir kláraði KR með 4 mörkum á 8 mínútum
KR 2-4 Fjölnir
Jónas Guðni Sævarsson og Gunnar Már Guðmundsson í baráttunni í leiknum. Ingimundur Óskarsson gerir sig kláran til að grípa inní.
Jónas Guðni Sævarsson og Gunnar Már Guðmundsson í baráttunni í leiknum. Ingimundur Óskarsson gerir sig kláran til að grípa inní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán Flóventsson leikmaður Fjölnis trúði vart sínum eigin augum þegar hann sá markatöluna 4-0 undir lok fyrri hálfleiks.
Óli Stefán Flóventsson leikmaður Fjölnis trúði vart sínum eigin augum þegar hann sá markatöluna 4-0 undir lok fyrri hálfleiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0-1 Gunnar Már Guðmundsson (´37, víti)
0-2 Gunnar Már Guðmundsson (´38)
0-3 Ómar Hákonarson (´41)
0-4 Ómar Hákonarson (´45)
1-4 Guðjón Baldvinsson (´59)
2-4 Guðjón Baldvinsson ('72, víti)

Einn leikur var á dagskrá í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnu í dag þar sem Fjölnismenn fóru með sigur af hólmi gegn KR en Fjölnismenn gerðu út um leikinn með fjórum mörkum á 8 mínútna kafla í lok fyrri hálfleiks.

Staðan var markalaus fram á 37. mínútu þegar Gunnar Már Guðmundsson kom Fjölnismönnum yfir með marki úr vítaspyrnu sem hafði verið dæmd fyrir bakhrindingu á Magnús Inga Einarsson innan vítateigs KR.

Einni mínútu síðar bætti Gunnar Már öðru marki við með bananaskoti rétt fyrir utan vítateig KR hægra megin sem Stefán Logi Magnússon markvörður KR réði ekki við.,

Á síðustu mínútunum bætti Ómar Hákonarson svo við tveimur mörkum fyrir Fjölni, það síðara eftir skemmtilegan samleik við ÓIaf Pál Snorrason í skynisókn. Staðan í hálfleik 4-0.

KR-ingar komu miklu sterkari til leiks í síðari hálfleik og náðu að skora tvö mörk. Guðjón Baldvinsson skoraði þau bæði, það fyrra eftir um klukkutíma leik eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Péturssyni á hægri kanti og það síðara úr vítaspyrnu sem hafði verið dæmd eftir að Gunnar Valur Gunnarsson braut á Gunnari Erni Jónssyni innan vítateigs.

KR hefur tapað öllum sínum þremur leikjum til þessa á Reykjavíkurmótinu en fyrri tveimur leikjum liðsins gegn ÍR og Leikni höfðu þeim verið dæmdir tapaðir þar sem Guðmundur Pétursson lék án leikheimildar í þeim.

Fjölnismenn eru komnir með fjögur stig eftir jafntefli gegn Val en þeir hafa aðeins leikið tvo leiki.

Staðan:

Lið - Leikir - Stig:
1. ÍR - 3 - 6
2. Valur 2 - 4
3. Fjölnir 2- 4
4. Leiknir 2- 3
5. KR 3 - 0

Hér að neðan má sjá fleiri myndir úr leiknum sem er hægt að sjá stærri með því að smella á þær.
Slapp
banner
banner