Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   sun 02. mars 2008 20:49
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: KR lagði Fjölni þrátt fyrir að vera manni færri
Fjölnir 2-3 KR
Grétar Ólafur Hjartarswon og Guðjón Baldvinsson sem báðir skoruðu fyrir KR í kvöld reyna að ná boltanum af Illuga Gunnarssyni.
Grétar Ólafur Hjartarswon og Guðjón Baldvinsson sem báðir skoruðu fyrir KR í kvöld reyna að ná boltanum af Illuga Gunnarssyni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Baldvinsson sendir framhjá Óla Stefán Flóventssyni sem skoraði annað marka Fjölnis.
Guðjón Baldvinsson sendir framhjá Óla Stefán Flóventssyni sem skoraði annað marka Fjölnis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1-0 Ómar Hákonarson ('27)
1-1 Guðjón Baldvinsson ('52)
2-1 Óli Stefán Flóventsson ('61)
2-2 Grétar Ólafur Hjartarson ('70)
2-3 Grétar Sigfinnur Sigurðsson ('76)

Rautt spjald: Ingimundur Óskarsson, KR ('39)

KR vann Fjölni 2-3 í Lengjubikarnum nú í kvöld þrátt fyrir að vera manni færri meirihluta leiksins því Ingimundur Níels Óskarsson leikmaður KR og fyrrum leikmaður Fjölnis fékk að líta tvö gul spjöld fyrri brot í fyrri hálfleik og þar með rautt.

Fjölnismenn náðu forystunni í leiknum eftir tælplega hálftíma leik. Illugi Gunnarsson sendi þá góða sendingu á vinstri kantinn þar sem Ólafur Páll Snorrason tók á móti boltanum og sendi góða sendingu fyrir markið þar sem Ómar Hákonarson kom á ferðinni og afgreiddi boltann í netið.

KR-ingar náðu svo að jafna metin í upphafi síðari hálfleiks. Markið skoraði framherjinn Guðjón Baldvinsson með góðu skoti fyrir utan teiginn. Staðan orðin 1-1.

Fjölnismenn komust svo aftur yfir eftir um klukkutíma leik Markið skoraði Óli Stefán Flóventsson með fallegri hælspyrnu eftir góða sendingu Gunnars Más Guðmundssonar inn í vítateiginn.

Tíu mínútum síðar jöfnuðu KR-ingar aftur og aftur var um að ræða skot fyrir utan vítateiginn. Að þessu sinni var það Grétar Ólafur Hjartarson sem var að verki.

Grétar lagði svo upp sigurmark KR sex mínútum síðar er hann tók hornspyrnu sem rataði beint á kollinn á nafna hans, Grétari Sigfinni Sigurðssyni sem skallaði í markið.

Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir smá spennu í lokin og lokatölurnar því 2-3 fyrir KR sem þarna hefndu ófaranna frá því í Reykjavíkurmótinu er Fjölnir vann 4-2.
Slapp
banner