mán 07.júl 2008 14:47 Hörður Snævar Jónsson,
Guðjón Heiðar: Þurfum að brjóta mun minna af okkur en aðrir
Guðjón Heiðar í leik gegn Fram í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Heiðar Sveinsson leikmaður ÍA segir á heimasíðu félagsins að Skagamenn þurfi að brjóta minna af sér enn aðrir til að fá spjöld.

,,Það er auðvitað enginn ánægður með það hversu fá stig við höfum fengið hingað til. En við ætlum okkur að snú því við," sagði Guðjón Heiðar við heimasíðu ÍA.

Mikið hefur verið rætt og ritað um slæma meðferð sem Skagamenn fá hjá dómurum landsins og Guðjón er á sama máli.

,,Við höfum verið einstaklega óheppnir með spjöld frá dómurum í sumar. Mér finnst eins og við þurfum að brjóta mun minna af okkur en aðrir til þess að fá spjöldin framan í okkur."

,,En þetta er að baki og við ætlum okkur að einbeita okkur að fótboltanum í þeim leikjum sem eftir eru og fá þau stig sem þarf til þess að ná okkur upp úr þessum öldudal sem við erum í núna. Til að það takmark náist verðum við allir sem einn að vera einbeittir í því sem við gerum inn á vellinum og fara eftir þem fyrirfælum sem lagt er upp með,"
sagði Guðjón Heiðar.

Næstu leikir hjá ÍA eru gegn Grindavík og Fjölni og Guðjón segir það mikilvæga leiki.

,,Næstu leikir eru mjög mikilvægir, bæði gegn Grindavík og svo gegn Fjölni, sem eru tveir síðustu leikirnir í fyrri umferðinni. Við verðum að fá einhver stig út úr þeim leikjum til þess að koma okkur á beinu brautina," sagði Guðjón Heiðar Sveinsson að lokum.

Nýjustu fréttirnar