Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   þri 02. september 2008 19:39
Magnús Már Einarsson
3.deild: KV, BÍ/Bolungarvík, Skallagrímur og Hamrarnir/Vinir áfram
Bjarni Þórisson og Jón Steinar Ágústsson berjast um boltann í leik Berserkja og Hamrana/Vina í kvöld.
Bjarni Þórisson og Jón Steinar Ágústsson berjast um boltann í leik Berserkja og Hamrana/Vina í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Úr leik Sindra og KV.
Úr leik Sindra og KV.
Mynd: Róslín Alma Valdemarsdóttir
8-liða úrslitunum í úrslitakeppni 3.deildar karla lauk í kvöld. Hamrarnir/Vinir slógu Berserki út 2-1 samanlagt og Skallagrímur lagði Huginn 2-1 og komst þannig áfram.

Á Hornafirði var mikið fjör en þar mættust Sindri og KV. Þessi lið gerðu 2-2 jafntefli í fyrri leiknum í Vesturbæ en KV komst í 3-0 snemma leiks í kvöld. Sindramenn jöfnuðu fyrir leikhlé og í síðari háfleik skoruðu bæði lið eitt mark og lokatölur 4-4 sem þýðir að KV fer áfram á útivallarmörkum.

Það var einnig mikil spenna í leik BÍ/Bolungarvíkur og Ýmis á Ísafirði. Fyrri leikurinn fór 2-1 fyrir Ými en heimamenn unnu 1-0 í kvöld og komast áfram á útivallarmarki.

Átta mínútum var bætt við leikinn, Ýmismenn reyndu allt hvað þeir gátu til að jafna og Ómar Ingi Guðmundsson átti meðal annars sláarskot en BÍ/Bolungarvík hélt hreinu og komst áfram.

Undanúrslitin hefjast síðan á laugardaginn en þar mætast Hamrarnir/Vinir og Skallagrímur og BÍ/Bolungarvík og KV.

Úrslit kvöldsins:

Berserkir 1 - 1 Hamrarnir/Vinir (Samanlagt 1-2)
0-1 Guðmundur Magnússon
1-1 Haraldur Ómarsson

Sindri 4 - 4 KV (Samanlagt 6-6, KV áfram)
0-1 Gísli Hrafn Magnússon
0-2 Halldór Ágúst Ágústsson
0-3 Magnús Bernhard Gíslason
1-3 Markaskorara vantar
2-3 Kristinn Þór Guðlaugsson
3-3 Kristinn Þór Guðlaugsson
3-4 Erik Challiiot
4-4 Seval Zahirovic (Víti)

Skallagrímur 2 - 1 Huginn (Samanlagt 3-2)
1-0 Sjálfsmark
2-0 Valdimar K. Sigurðsson
2-1 Birgir Hákon Jóhannsson

BÍ/Bolungarvík 1 - 0 Ýmir (Samanlagt 2-2, BÍ/Bol áfram)
1-0 Sjálfsmark ('56)

Undanúrslit (6 og 9.september):
Hamrarnir/Vinir - Skallagrímur
BÍ/Bolungarvík - KV
Athugasemdir
banner