Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. október 2008 09:26
Hafliði Breiðfjörð
Vigfús Arnar stefnir á að fara í Landsbankadeildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Vigfús Arnar Jósepsson íhugar nú að yfirgefa 1. deildarlið Leiknis til að leika í Landsbankadeildinni á næstu leiktíð en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í gær.

Vigfús Arnar er uppalinn hjá Leikni en hafði gengið í raðir KR árið 1998. Hann hafði verið lánaður til Leiknis tímabilin 2004, 2005 og síðari hlutann 2007, og gekk svo endanlega í raðir félagsins síðasta haust þar sem hann gerði tveggja ára samning. Vegna klásúlu í samningi sínum má hann hinsvegar yfirgefa Leikni núna.

,,Ég er að hugsa mér til hreyfings, ég er samningslaus núna, en það á eftir að koma í ljós hvað verður. Það var ákvæði að ef Leiknir færi ekki upp í Landsbankadeildina þá myndi ég losna undan samningnum," sagði Vigfús Arnar í samtali við Fótbolta.net í gær.

,,Leiknir vill halda mér áfram en það er allt í skoðun hjá mér. Ég hef hug á að fara í Landsbankadeildina en það þurfa að vera réttar aðstæður ef ég fer þangað. Ég fer ekki bara í eitthvað lið. Ég hef heyrt aðeins af áhuga þaðan."

Vigfús Arnar Jósepsson er 24 ára gamall. Hann átti fast sæti í byrjunarliði Leiknis í 1. deildinni í sumar og lék í heildina 20 af 22 leikjum liðsins í deildinni.

Leiknir endaði í sjöunda sæti 1. deildar í sumar með 26 stig. Sigursteinn Gíslason tók við þjálfun liðsins að tímabilinu loknu en hann hefur verið aðstoðarþjálfari hjá KR undanfarin ár. Garðar Gunnar Ásgeirsson lét af störfum sem þjálfari Leiknis.
Slapp
banner