Heimild: Sky
Það ræðst ekki fyrr en á síðustu stundu hvort norski framherjinn Steffen Iversen muni geta spilað með norska landsliðinu gegn því skoska í riðli okkar Íslendinga í undankeppni HM 2010 á laugardag.
Iversen sem er fyrrverandi leikmaður Tottenham sem í dag leikur með Rosenborg skoraði sigurmarkið síðast þegar Norðmenn mættu Skotum á Hampden Park árið 2004. Hann meiddist á sköflungi í síðasta leik sínum með Rosenborg.
,,Iversen mun ákveða allt þegar það kemur að því að velja liðið, en ég er enn vongóður um að hann nái þessu í tíma," sagði Age Hareide landsliðsþjálfari Noregs.
,,Allt veltur á heilsu Iversen. Ef Steffen er nógu góður til að spila þá munum við spila með tvo framherja. Ef ekki, þá spilum við með fimm miðjumenn og kannski John Carew sem eina framherjann."




