Heimild: Sporting Life
Claudio Ranieri þjálfari Juventus segir að hann hafi hætt við að kaupa Xabi Alonso frá Liverpool í sumar því hann væri of hægur fyrir Juventus.
Juventus átti í viðræðum við Liverpool um að kaupa Alonso í sumar en á endanum varð spænski landsliðsmaðurinn áfram í röðum enska félagsins.
,,Hann var leikmaður sem við vildum," sagði Raneri um Alonso.
,,En hann er leikmaður, sem jafnvel þó hann sé óvenjulegur maður og frábær atvinnumaður, þá truflaði það mig hversu hægar hreyfingar á miðjunni hann er með."
,,Á miðjunni í Liverpool liði Rafa Benítez, þar sem þeir eru allir litlir stríðsmenn, er hann í frábærri stöðu. En á miðjunni okkar hefði hann átt í erfiðleikum með að fá stuðning á miðjunni því Mauro Camoranesi og Pavel Nedved eru ekki leikmenn sem koma til baka og gefa stuðning eins og kantmenn Liverpool."



