Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 09. október 2008 11:08
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Benítez: Verðum að hafa báða fætur á jörðinni
Rafa Benítez stjóri Liverpool segir að það sé mikilvægt fyrir leikmenn að hafa báða fætur á jörðinni eftir góða byrjun liðsins á tímabilinu. Liðið var gagnrýnt í upphafi tímabilsins fyrir ósannfærandi leik en þrátt fyrir það eru þeir nú taplausir í 12 leikjum í röð og hafa nú þegar unnið erkifjendurna í Manchester United og Everton.

Þeir sýndu svo ótrúlegan karakter þegar þeir báru 3-2 sigur úr bítum gegn Manchester City um helgina eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.

Liðið er nú í efsta sæti deildarinnar ásamt Chelsea eftir sjö umferðir en Benítez segir þó að leikmenn verði að passa sig á því að halda sig á jörðinni og missa ekki einbeitninguna.

„Það er mikilvægt að senda réttu skilaboðin,“ sagði Benítez á opinberri heimasíðu Liverpool. „Við eigum enn langa, langa leið fyrir höndum. Við verðum að halda áfram að gera hlutina rétt, bæði núna og líka næstu mánuðina.“

„Að sjálfsögðu megum við hafa trú á okkur en við verðum að hafa báða fætur á jörðinni. Við getum notið þess að vera á toppi deildarinnar en leikmennirnir vita að við verðum að halda áfram þar til þessu er lokið. Við getum ekki unnið titil núna – við getum bara unnið hann í lok tímabilsins.“
Slapp
banner