Heimild: Vefsíða KSÍ
Stelpurnar í U17 kvenna leika sinn annan leik sinn í dag í undankeppni EM en riðillinn er leikinn á Ítalíu. Mótherjar Íslendinga í dag eru einmitt Ítalir og hefst leikurinn kl. 13:00 að íslenskum tíma. Afmælisbarn dagsins Kristrún Lilja Daðadóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið.
Íslenska liðið tapaði fyrsta leik sínum gegn Frökkum naumlega með einu marki gegn engu en franska liðið skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Ítalir unnu hinsvegar Azera með þremur mörkum gegn einu í sömu umferð.
Byrjunarliðið í dag:
Markvörður:
Birna Berg Haraldsdóttir
Aðrir leikmenn:
Katrín Ásbjörnsdóttir
Hanna María Jóhannsdóttir
Rebekka Sverrisdóttir
Silvía Rán Sigurðardóttir
Heiða Dröfn Antonsdóttir
Arna Sif Ásgrímsdóttir
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Ásta Eir Árnadóttir
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir.


