Heimild: Sky
Rio Ferdinand leikmaður Manchester United og enska landsliðsins líkir Theo Walcott við Michael Owen.
Walcott skoraði þrjú mörk í 4-1 sigri á Króatíu í síðasta mánuði og Ferdinand segir hann vera eins og Owen á táningsárunum.
,,Theo veit hver styrkur sinn er og að Michael Owen var nákvæmlega eins," sagði Ferdinand.
,,Ég var með Michael allan tímann á HM 98 og maður vissi bara að hann væri góður leikmaður og hverju hann væri góður í."
,,Þú sérð það sama gerast með Theo núna, ólíkir leikmenn, en með sama hugarfar."
,,Hraðinn og nákvæmu hlapin hans, það bara skiptir ekki máli hverjum þú stillir upp fyrir framan hann. Nákvæmlega eins og Cristiano Ronaldo."




