Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 09. október 2008 14:10
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Terry æfði ekki með Englandi í dag
Líkurnar á að John Terry geti spilað með enska landsliðinu um helgina fara þverrandi eftir að hann gat ekki æft með liðinu í dag. Terry hefur ekkert æft með liðinu alla vikuna vegna meiðsla á baki og nú minnka líkurnar á að hann verði með í leiknum gegn Kazakhstan á laugardag.

Terry hafði farið í gegnum léttar æfingar í gær en gat ekki einu sinni gert það í morgun. Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands hefur áður sagt að hann vilji ekki taka áhættu með leikmenn sem eru ekki í fullu formi og því líklegt að Terry verði ekki með.

England fer svo til Hvíta Rússlands og mætir þar heimamönnum á miðvikudaginn og Englendingar gera sér vonir um að Terry gæti verið klár í þann leik verði hann ekki með á laugardag.

Terry hefur borið fyrirliðaband Englendinga en fari svo að hann missi af leiknum er það Rio Ferdinand sem tekur bandið sem varafyrirliði. Óljóst er hvort Matthew Upson, Wes Brown eða Joleon Lescott fengju stöðu Terry við hlið Ferdinand í leiknum þó Lescott sé talinn líklegastur.

Jákvæðu tíðindin fyrir Englendinga eru þau að Emile Heskey og Jermain Defoe sem hafa verið tæpir vegna bakmeiðsla tóku fullan þátt í æfingunni í dag án þess að kvarta.
Slapp
banner
banner