Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. október 2008 17:11
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Fabianski tilbúinn að bíða eftir tækifærinu með Arsenal
Lukasz Fabianski varamarkvörður Arsenal segir að það trufli hann ekkert að vera varamaður Manuel Almunia í Arsenal liðinu og fá ekki mörg tækifæri nema ef vera skildi í Carling Cup.

Fabianski er 23 ára gamall Pólverji sem þrátt fyrir að komast ekki í lið Arsenal hefur verið valinn í pólska landsliðshópinn sem mætir Tékkum í undankeppni HM 2010 á laugardag.

,,Ég kvarta ekkert," sagði Fabianski við DNES. ,,Arsenal er frábært félag og ég hef lært margt."

,,Því miður hefur mér ekki tekist að verða aðalmarkvörður ennþá og fyrir markvörð er mikilvægt að spila oft. En ég er ánægður með hvert einasta tækifæri sem ég fæ. Ég hef lagt hart að mér og verð betri og betri með hverjum leik."
Slapp
banner
banner