Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 09. október 2008 19:21
Davíð Örn Atlason
Heimild: Setanta 
Pires vill fá Wenger sem landsliðsþjálfara Frakklands
Robert Pires fyrrum leikmaður Arsenal vill fá Arsene Wenger núverandi knattspyrnustjóra Arsenal til þess að stýra franska landsliðinu.

Pires, sem hætti að leika með landsliðinu árið 2004 spilaði hjá Arsenal undir stjórn Wenger í sex ár eða frá árunum 2000 - 2006. Núna er hann leikmaður Villareal á Spáni.

Raymond Domenech hefur ekki gert góða hluti með franska landsliðið í stjóratíð sinni og vill Pires skipta.

,,Arsene Wenger er herramaður og hann myndi hafa jákvæð áhrif á landsliðið," sagði Pires.

,,Hann er frábær, en að sjálfsögðu er hann samningsbundinn Arsenal og ekki laus eins og er."

,,En maður veit aldrei hvað gæti gerst. Ef að peningar eru til staðar hjá franska knattspyrnusambandinu er allt mögulegt."
Slapp
banner
banner