Heimild: AP
Bert van Marwijk þjálfari Hollands glímir við mikil vandræði núna því margir leikmenn liðsins eru meiddir fyrir leik liðsins gegn Íslandi á morgun.
Robin van Persie, Arjen Robben og Jan Vennegoor of Hesselink eru allir meiddir en þeir eru allir framherjir.
Þá eru þeir John Heitinga, Wilfried Bouma, Khalid Boulharouz og Maarten Stekelenburg allir frá vegna meiðsla.
Wesley Sneijder leikmaður Real Madrid er í hópnum en hann hefur verið meiddur á hné og er óvíst með þátttöku hans í leiknum.





