Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 10. október 2008 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sporting Life 
Ólíklegt að John Terry verði með á laugardaginn
Afar ólíklegt er að John Terry fyrirliði enska landsliðsins verði með liðinu gegn Kazakhstan á laugardaginn þegar liðin mætast í Undankeppni HM á Wembley.

Terry missti af æfingu enska liðsins í gær og það er talið afar ólíklegt að Fabio Capello muni velja hann.

Capello hefur sagt það frá því að hann tók við enska landsliðinu að menn þurfa að vera 100 prósent heilir til að taka þátt í leikjum.

Capello ætlar ekki að taka neina áhættu því erfiðari leikur bíður Englendingum á miðvikudag þegar liðið mætir Hvít-Rússum.
Slapp
banner